F I R M A T U R

Starfsmannaferð

Er verið að leita að ferskum innblæstri og nýjum hugmyndum? Ekkert eflir samstöðuna og blæs fólki andagift í brjóst eins og vel heppnuð starfsmannaferð! Við höfum skipulagt starfsmannaferðir síðan 2009 og búum að mikilli reynslu af mikilvægi þess að bjóða upp á spennandi upplifanir, faglegt efni, frjálsan tíma og hlé.

Ophelix ræður yfir sérfræðingum sem bjóða einmitt þá aðstoð sem þið hafið þörf fyrir, allt frá skipulagi til framkvæmdar, þannig að við getum í samstarfi skipulagt starfsmannaferð sem lengi verður í minnum höfð.

Þannig skipuleggjum við fullkomna starfsmannaferð fyrir þig

Við leggjum áherslu á að starfsmannaferðin bjóði upp á allt það sem ykkur dreymir um og helst aðeins meira en það. Við byrjum þess vegna alltaf á því að kortleggja þau markmið og þær væntingar sem þið hafið og því nánari upplýsingar sem við fáum, því einfaldara verður að sérsníða draumaferðina. Það er sama hvort markmiðið er hópefli, fagleg ráðstefna eða hvoru tveggja, við miðum alltaf undirbúninginn við það sem stefnt er að.

Fyrst er kynning og undirbúningsfundur og að því búnu leggjum við fram nokkrar mismunandi tillögur um áfangastaði, hótel, viðfangsefni og veitingastaði. Þegar þið hafið valið pakkalausn, lagfærum við dagskrána og fínstillum þar til við erum viss um að skipulagið smellpassi fyrir hópinn ykkar.

Hvers vegna ættuð þið að velja Ophelix?

Við búum að mikilli reynslu á þessu sviði, þekkjum gildrurnar sem hægt er að falla í og hvar bestu leyndarmálin er að finna. Þess vegna getur þú áhyggjulaus látið okkur annast annað hvort allt skipulagið eða ákveðna þætti þess. Við erum fljót að sjá hvaða áfangastaðir henta hópnum og við þekkjum réttu hótelin og þær einstöku upplifanir sem móta minningarnar.

Það er ástæðulaust að leyna því að það þarf mikið til þess að skipuleggja vel heppnað ferðalag. Þú getur sparað bæði þér og fyrirtækinu mikinn tíma og ekki síst peninga því við sjáum nefnilega um allt skipulagsferlið þannig að þið samstarfsfólkið getið einbeitt ykkur að verkefnum ykkar.

Viltu spyrja einhvers frekar? Hafðu samband og ræddu við okkur án nokkurra skuldbindinga um mismunandi áfangastaði og hvernig Ophelix getur sett saman réttu starfsmannaferðina fyrir einmitt þitt fyrirtæki.